Mín besta heilsa

Eigandi Mín besta heilsa leitaði til ENNEMM árið 2020 og bað um tillögur að útliti fyrir fyritæki sitt. Fyrirtækið var þá í startholunum og þurfti fyrirtækjamerki og einfalda tillögu að mörkun. Þessi tillaga var samþykkt en efnið hefur ekki enn farið í notkun.

Við hönnun á útliti fyrirtækisins vildi ég leggja áherslu á yfirvegun, mýkt, náttúru og einfaldleika. Öll hönnun miðast þá einnig við hagkvæmni í framkvæmd þar sem fyrirtækið var nýtt af nálinni en ég vildi þó útfæra á þann hátt að það gæfi tilfinningu fyrir rótgróinni fágun.

Hugmyndavinna, vörumerki, hönnun