Mjólkin gefur styrk

Hugmyndavinna, stefnumótun, hönnun, hönnun á vef, hönnunarstjórnun


MS vildi beina athyglinni að næringunni og bætiefnunum sem finna má í mjólkinni, efni sem hjálpa okkur að styrkjast og eflast. Þau Edda, Haukur, Leo og María sögðu okkur hvernig mjólkin veitir þeim kraft og styrk til að ná árangri. Í markaðsefni þá myndaði mjólkurlitaður bakgrunnurinn andstæðu við kraftmiklar og svarthvítar ljósmyndirnar. Bætiefnin og byggingarefnin sem líkaminn fær með náttúrulegum hætti úr mjólkinni voru þá dregin fram á sjónrænan hátt í allri grafík.